Hjólað í sund í Mosfellsbæ

01-28-019

Það er ekki eins langt að hjóla upp í Mosfellsbæ og margur heldur.  Mig langaði í sund og ákvað að hvíla Laugardalslaugina aðeins, fara í staðinn upp í Mosfellsbæ og reyna að finna nýju sundlaugina, en ég hef ekki komið í hana.

01-28-017

En svo gleymir maður sér við sjávarsýnina og ferska loftið og skyndilega var ég komin upp að gömlu sundlauginni við Varmárskóla, en sú nýja er mun neðar, nær Reykjavík.  Það er gallinn við stígakerfið hérna, það þarf að sjálfsögðu vegvísa á því eins og er við umferðagöturnar.  Ég var alfarið á stíg á leiðinni frá Reykjavík að lauginni, en mest megnis á götum á leiðinni til baka.

01-28-030

Ég hélt að ég hefði einhvern tíma komið í þessa laug, en greinilega ekki, laugin sjálf er 25 metrar, og dýpkar mjög skyndilega úr 1 metra í ca 4 eins og hönnunin var gjarnan á gömlu laugunum.  Fyrir vikið fékk ég smá Avatar tilfinningu, enda með máð og lúin sundgleraugu sem juku á áhrifin.  Magnað að synda fram af hengifluginu og stara skyndilega ofan í djúpið.  Fyrsta og eina skiptið sem ég hef fundið fyrir lofthræðslu í sundi.  Svo voru 3 heitir pottar og verkamenn að vinna að einhverju, sem gæti orðið busllaug fyrir yngstu gormana, en þessi laug er lítið spennandi fyrir fjölskyldufólk.

01-28-035

Ég var klukkutíma að hjóla frá Smáíbúðahverfinu og upp í Mosfellsbæ, meðfram sjónum með sterkan mótvind..  Svo hjólaði ég Hafravatnsleið til baka, í gegn um nýju hverfin í Gravarholti sem munu væntanlega standa með tómar tóftir um ókomin ár, ég gleymi alltaf að það er enginn góður stígur þarna á leiðinni til Reykjavíkur, ég enda alltaf á Vesturlandsvegi innan um bíla á 100+ km hraða.

01-28-025

01-28-034

mosfells-hringur

01-28-029


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: steinimagg

Já ég lærði nú að synda í Varmárlaug á sínum tíma enda úr Mosó :-) Það var alltaf mikið fjör í lauginni, það var alltaf hellingur af krökkum í henni á hverju kvöldi og mesta fjörið þegar það var farið að dimma, snilldar tími. Mesta fjörið var að fara í eltingarleik sem var með allskonar reglum sem ég nenni ekki að útskíra. Það þíðir lítið að segja krökkum frá þessu í dag hvað þetta var gaman þau botna bara ekkert í því. Ég sakna Mosó.

steinimagg, 7.2.2010 kl. 01:26

2 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Satt segirðu Steini.  Ég fór nánast á hverju kvöldi í sundlaugina á Ísafirði, það var bara ein ísköld sundlaug, engir heitir pottar, ekkert dót, engin rennibraut, en samt gat maður leikið sér endalaust.  Sérstaklega var gaman að gera það sem var stranglega bannað, fara ósyndur með kúta út í djúpu laug eða klifra upp í gluggana og hoppa út í.  Nú eða kíkja inn í búningsklefa hjá gagnstæðu kyni *ehemm*  Núna finnst mér eins og börn geti ekki leikið sér ef það er bara vatn og ekkert annað.

Hjóla-Hrönn, 7.2.2010 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband