Svínaskarð

05-29 012 

Jæja, þar fór Bláa Lóns þrautin hugsaði ég með mér á meðan ég paufaðist upp hlíðina og rak tærnar ítrekað í hnullunga í götunni.  Það getur verið gott að lesa leiðarlýsingu áður en maður leggur í'ann.  Eða kannski ekki, þá hefði maður bara setið heima og lakkað á sér táneglurnar.  Og misst af skemmtilegri ferð Fjallahjólaklúbbsins.  Það voru 10 mættir, eitthvað höfðum við misskilið leiðbeiningarnar, fararstjórinn beið við vegamótin, allir hinir keyrðu inn að bóndabæ með sama nafni og afleggjarinn og biðum þar dágóða stund símasambandslaus.  Lögðum svo bara af stað, enda alltaf einhver sem ratar og það voru nokkrir með Garmin á stýrinu.  Við vorum átta karlmenn og tvær konur.  Einhver taldi raunar þrjár konur, en það hefur verið einhver álfamær sem hefur langað að slást í hópinn.

05-29 013

Það verður einhver að vera síðastur og ég tók að mér það hlutverk í dag.  Mér fannst ég í ægilega fínu formi á Nesjavöllum, en ég hjólaði upp allar brekkur þar, þurfti ekkert að teyma hjólið.  Ég gat eiginlega ekkert hjólað fyrstu 10 kílómetrana.  Fyrst var það upp snarbratta grýtta brekku, og svo niður snarbratta grýtta brekku.  Nokkrir jaxlar hjóluðu þetta þó allt saman, sátu svo í makindum og sóluðu sig á meðan ég paufaðist upp í mót um urð og grjót.  Bölvandi þessum 10 kílóum sem ég ætlaði að vera búin að losa mig við í vetur.  Og því að vera ekki í betri skóm, ég ákvað að fara á fjallahjólinu, en það er ekki með klítum, það er horror að vera í klítaskóm á venjulegum petölum, svo ég varð að skorða mig af á miðjum petalanum og lappirnar runnu stanslaust til.  Mundi náttúrulega eftir því í miðri brekku að ég var með Meindl gönguskóna mína í skottinu á bílnum, hefði skipt yfir í þá ef ég hefði fattað það niðri á plani.

05-29 018

Ég hef stundum lent í því að vanur ferðafélagi hjólar upp að mér "Hrönn, þú ert á felgunni"  Og þá verið að meina að ég sé með of lint í dekkjunum, ekki að ég sé drukkin á hjólinu.  En núna var annar vanur hjólafélagi sem sagði "Hrönn, þú ert með allt of hart í dekkjunum"  Ákveða sig strákar!  Nei, nei, það skiptir máli hvar maður er að hjóla, á grófum malarslóðum er betra að vera með lítinn þrýsting til að dekkin grípi betur og það sé auðveldara að stýra hjólinu.  Á malbikinu er betra að vera með góðan þrýsting í dekkjunum, þá rennur maður betur.  Ég sem kom við á bensínstöð og vél-pumpaði í dekkin svo ég yrði ekki hönkuð á felgu-dæminu.

05-29 016

Fleiri mistök.  Allir hinir voru með bakpoka eða mittistöskur.  Það er mikið auðveldara að vera með farangurinn á bakinu eða í mittistösku í svona ferð.  Sérstaklega ef það þarf að teyma mikið.  Ég á tvær mittistöskur sem héngu heima í skáp á meðan ég hristi Ortliebinn minn í sundur í Svínaskarðinu.  Sem betur fer datt skrúfan ekki úr fyrr en ég stoppaði til að athuga af hverju taskan rakst í hælinn á mér.  Ég hef átt í brasi með hnakkinn undanfarið, hann hefur viljað losna, svo ég ákvað að taka með bita sem passaði í hnakkskrúfuna.  Og úr því ég var með bitasettið í höndunum, þá endaði það ofan í hjólatöskunni.  Annars hefði ég verið í smá vandræðum með laskaða hjólatösku.

05-29 020

Þá spunnust upp sögur, þar sem nokkrir félagar voru á ferðalagi og allir voru búinir að hrista í sundur bögglaberana, hjólin og töskurnar, allir voru með meira og minna víruð og teipuð hjól og farangur.  Það er komið á innkaupalistann.  Blómavír, rafmagnsvír og nauðgunarteip.  Ehh, *hóst*, ekki að maður ætli að fara að gera eitthvað af sér í hjólaferðunum, bara þetta gengur undir þessu nafni, gráa sterka teipið...

Svo var hjólað þægilega sveitavegi með Kára í bakið og svo smá spotta eftir Þingvallavegi.  Þetta tók ríflega 5 tíma með tveimur snöggum nestispásum.  Hér má lesa nánar á vef fjallahjólaklúbbsins um Svínaskarðið:

http://fjallahjolaklubburinn.is/content/view/524/144/

05-29 021

05-29 025

05-29 027

05-29 028

Tókstu eftir Bangsimon?  Bara að tékka á athyglisgáfunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: steinimagg

Ætlaði í þessa ferð en gírkassinn á hjólinu er eitthvað að stríða mér, kem vonandi með í næstu fjallaferð. Gaman að sjá hvað þú ert dugleg að mynda í þessum ferðum og setja myndirnar á bloggið.

steinimagg, 30.5.2011 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband