Hó, hó, hó

IMG_0321

Ég vorkenndi jólasveininum þegar ég var lítil stelpa heima á Ísafirði.  Sveinki birtist á öllum myndum sem gamall, feitur kall með hvítt skegg og mér fannst ófært að láta hann klifra upp á aðra hæð til að gefa mér í skóinn.  Ég sjálf klifraði oft upp á skyggnið yfir dyrunum og stundum alveg upp á þak til að sækja bolta sem höfðu skorðast í þakrennunni.  Svo ég vissi vel að þetta var erfitt.  Hvað þá um hávetur þegar snjór og hálka var á skyggninu.

Eitt kvöldið datt mér það snjallræði í hug að binda þveng í skóinn minn og láta hann síga niður á götu.  Næsta morgun spratt ég á fætur, og varð hissa á að sjá nammi í gluggakistunni, en skórinn minn var fullur af snjó þegar ég dró hann upp.  Þótti mér skrítið að Sveinki hefði klöngrast upp með öll sín aukakíló þegar hann gat látið nammið í skóinn sem lá niðri á stétt.

IMG_0117

Myndin hér fyrir ofan er tekin að sumarlagi, en á henni sést skyggnið.  Afi og amma í móðurætt, mamma og svo hið merkilega, báðir bræður mínir á hjólum, en ekki ég!  Engin furða að ég sé með hjólabakteríu í dag, hef ekkert fengið hjóla í æsku...  Jú, jú, ég átti líka hjól, það er bara ekki til nein mynd af mér hjólandi.  Veturnir voru hins vegar snjóþungir fyrir vestan og ekkert hjólafæri marga mánuði ársins, þó man ég eftir að við vöfðum snæri um dekkin og gátum hjólað eitthvað á þeim þannig.  Þá voru ófá snjóhús byggð og ég man varla öðru vísi eftir mér en hálf ofan í skafli, á skautum eða skíðum.

08-05 8

Ég er nú ekki skömminni skárri en jólasveinninn.  Ég hef undanfarin 2 ár hjólað sjálf með jólakortin til ættingja og vina á höfuðborgarsvæðinu, það hefur tekið mig 3 góða hjólatúra, og ég veit ekki alveg af hverju ég er að þessu þegar ég get setið heima með heitt súkkulaði og piparkökur og látið Íslandspóst bera þetta út fyrir mig.  En ég get ekki svikið strákana, þeim finnst svo gaman að bera út jólapóstinn með mér.

hjolasveinar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband