Ein ég sit við sauma

kilt

Svona „flík“ þarf að sérsníða handa hverjum og einum.  Annars gægist millifótakonfektið niður undan kiltinu.  Þetta er upplagt að nota á sólríkum dögum og getur hæglega leyst af hefðbundnar hjólabuxur.  Alls velsæmis gætt.  Bæði að framan og aftan.  Hann Jón Þór, ferðafélagi minn var svo elskulegur að sitja fyrir í múnderingunni og fékk kiltið að launum.  Kvartaði raunar yfir því að það væri of lítið, ég er enga stund að redda því, get tekið niður faldinn og sett blúndu neðst eða skeytt inn efnisbút.

Eins og glöggir menn hafa áttað sig á þá er þessi færsla ekki ný af nálinni.  Samt ekki eins gömul og hún virðist vera.


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Hjóla Hrönn.

Gott framtak hjá þér.

Veistu, ég fór að hjóla fyrir alvöru eftir að ég flutti til Reykjavíkur.

Bílaumferðin hér er bara martröð. Kemst ekki spönn frá rassi. Bílastæðaleit er  alveg sérkapítuli. Reyndu bílastæðahúsin, þau gefast best.

Það má ýmislegt gera fyrir 5 þúsund á mánuði í bílastæðagjald frá atvinnurekenda.  Út að borða með makanum, án víns. Ég mæli með veitingastaðnum Madonnu á Rauðarárstíg, sjúklega góðar pizzurnar þar. Stór vel útilátinn góð pizza með 2 x kók er kannski 4. þúsund kall.

Alltaf gott að gefa sér einhvern hvata, eitthvað sem hvetur mann áfram að hjóla. Getur líka keypt fínan vindheldan jakka og þægilegar hjólabuxur, grifflur, eyrnaskjól á hjálminn o. fl. fyrir bílastæðapeningana. 

40 aukakíló er nú ekki neitt,  þú er bara vel vaxin dama. Ætli ég myndi ekki bara elta þig, ef ég sæi þig á hjólinu... perrinn sem ég er. Er svolítið veikur fyrir vel vöxnum dömum.  Þú tekur eftir því ef rúmlega fertugur karlmaður á reiðhjóli er OF móður og másandi á eftir þér um stund.

Leyfi mér að vitna í hjólreiðasíðu sem ég rakst á: " Orka líkamsfitu er stórlega vanmetin." 

( http://www.voffi.org/ )

Eða eitthvað í þá áttina. Þú þarft þá ekki að hjóla um með próteinstykki, banana og orkudrykki, ert bara með þetta innbyrðis. Ég þarf alltaf að hafa með mér nesti á hjólinu.

Kveðja, 

Heimir H. Karlsson. 

Heimir H. Karlsson (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 16:00

2 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Takk fyrir innlitið Heimir

Það var nefninlega svolítið merkilegt.  Við fáum bara afhent bílastæðakort.  Við getum ekki valið um strætókort eða peninginn í vasann.  Annars hefði verið svo upplagt að verðlauna sig með einhverju nýju hjóladóti.  Eða út að borða.

Ég verð nú bara upp með mér ef einhver fer að mása fyrir aftan mig

Kv. Hrönn

Hjóla-Hrönn, 16.5.2008 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband