22.8.2009 | 23:37
Berbakt um bæinn
Þar eð ég er með ímyndunar-svínaflensu dauðans (hausverk, beinverki, svima, ljósfælni en engan hita), þá kunni ég ekki við að láta sjá mig á geirvörtunum í bænum. Og vildi ómögulega næla mér í lungnabólgu. En vildi samt sýna lit og smá hold. Svona í tilefni dagsins. Menningarnótt og fyrsti Berbakt-um-bæinn hjóla-atburður held ég nokkurn tíma hérlendis.
Fyrst var ég að spá í slagorðið "Mér finnst rigningin góð" en þegar það leit ekki út fyrir rigningu, þá ákvað ég annað slagorð. Til heiðurs túristunum sem ég hef hjólað fram hjá undanfarnar vikur.
Ég hef hjólað til vinnu léttklædd í sumar, þess vegna oft á hlýrabol og stuttbuxum. Finnst rosalega notalegt að hjóla til vinnu í 10 stiga hita og sól. Jei, gleði, gaman, Íslenskt sumar. En svo hjóla ég fram hjá túristunum hjá Sólfarinu, króknandi úr kulda í sama veðri, í ullarpeysum, úlpum þar utan yfir, húfum á hausnum og með skelfinarsvip á andlitinu. Þegar ég þeysi léttklædd framhjá.
Það má vera að það birtist myndir af bakinu á mér einhvers staðar annars staðar á netinu, og þá með meinlegri stafsetningarvillu, Naked bik ride, það er kallinum að kenna, hann fékk það hlutverk að skrifa slagorðið á skrokkinn á frúnni!
Myndbanið er komið á youtube, er á barnum hér til vinstri og líka hér:
Tenglar
Myndbönd
- Uxahryggir - dagsferð
- Óvissuhelgarferð Óvissuferð Fjallahjólaklúbbsins
- Berbakt um bæinn Naktir sem hálfnaktir hjólakappar hjóla um borg og bý
- Óvissuferð - fyrri hluti
- Óvissuferð - seinni hluti
- Nesjavellir
- Skorradalsvatn 1
- Skorradalsvatn 2
- Viðey - fyrri hluti Fjallahjólaklúbburinn tók Viðey í brakandi blíðu
- Viðey - seinni hluti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.9.): 1
- Sl. sólarhring: 24
- Sl. viku: 382
- Frá upphafi: 39495
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 132
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008

mortenl
hjolina
hallsteinn
arnid
vilberg
mberg
prag
lhm
jensgud
matthildurh
prakkarinn
tigercopper
jonsnae
hordurhalldorsson
nonniblogg
jyderupdrottningin
sjos
topplistinn
laugardalur
gattin
stinas





Athugasemdir
Gaman að sjá vídeóið og myndina. Ég tók nú ekkert eftir þessari ritvillu á bakinu á þér, varstu búin að laga þetta þegar við hjóluðum?
þetta var annars mjög gaman...og Takk fyrir síðast.
bestu kveðjur
Anna - hjólum til heilla!
Anna Karlsdóttir, 24.8.2009 kl. 22:29
Takk sömuleiðis Anna
Nei, hún var ekki löguð fyrr en ég kom heim, þá lét ég bóndann laga og filma bakið aftur.
Hjóla-Hrönn, 25.8.2009 kl. 00:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.