Hvalfjörður - Eilífsdalur

10 11 003

Ég tók smá hring í Hvalfirðinum í dag, skildi þennan stutta spotta eftir þegar ég tók Vesturlandið í sumar.  En það ferðalag var planað þannig að ég tók alla 20-80 km langa hringi sem ég fann á kortinu og hjólaði þá.  Ætlaði að hjóla hann á suðurleiðinni, en náði því ekki.  Það verður að klára dæmið svo maður geti snúið sér að næsta landshluta næsta sumar.

10 11 009

Þegar ég keyrði fram hjá Esjunni sá ég að fánarnir blöktu ansi hressilega.  Ég átti þá allt eins von á að það væri brjálað veður í Hvalfirðinum, ákvað samt að fara þangað og athuga aðstæður, ég er nú ekkert óvön því að þurfa að breyta plönum þegar ég hef ætlað að viðra mig í Hvalfirðinum, enda merkilega oft á djamminu í nálægum sveitarfélögum vegna óveðurs.  En það var þetta líka blankalogn og brakandi sól.  Ég varð eiginlega að standast freistinguna að taka ekki allan Hvalfjörðinn í einu, halda mig við upphaflega planið, hringinn í kring um Eyrarfjall.

10 11 014

Hvalfjörðurinn er náttúrulega malbikaður, en Eyrarfjallsvegur (nr. 460) er alfarið malarvegur.  Sæmilega sléttur fyrir utan nokkra holótta kafla.  Og vegurinn var mest megnis einbreiður, það var smá bras að mæta bílum, við þurftum bæði að víkja alveg út í lausan kant, ég og ökumennirnir.

10 11 016 

Það var æði kuldalegt umhorfs á leiðinni, en hitinn var samt 5-7 stig og ég á mörkunum að fækka fötum.  Þá niður á stuttermabolinn.  Það hefði gengið eftir ef ég hefði verið fyrr á ferðinni, klukkan var 16 og þá var sólin horfin úr Eilífsdalnum.

10 11 019

Ekki veit ég hvað er svona merkilegt við Orustuhólinn sem er merktur "Athyglisverður staður".  Reyndi að gúggla fyrirbærið þegar ég kom heim, en fékk þá upp mynd af öllu veglegri hól allt annars staðar á landinu.  Það væri kannski ekki óvitlaust að bæta við smá skilti á stöngina með upplýsingum um af hverju þessi hóll er talinn vera merkilegt fyrirbæri.

10 11 018

Þessi hringur er 20 km og ég var ca klukkutíma og þrjú korter að fara hann.  Með nokkrum stuttum mynda og drykkjarpásum.  Og rölti upp á Orustuhólinn.

10 11 031

10 11 035

10 11 039

10 11 004

10 11 040


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Davíðsson

Þú minnist ekki á brekkuna upp allan dalinn. Það er greinilegt að hún skiptir orðið litlu máli fyrir þig eins og aðra hjólreiðamenn.

Ég var með skiptinema hjá mér í fyrravetur, svissneska stúlku. Ég var að sýna henni leiðina í FG fyrraahaust og við hjóluðum upp á Arnarnesið úr Kópavogi. Í miðri brekkunni fór hún að tala um hvað það væri þægilegt að hjóla á Íslandi af því það væru svo litlar brekkur m.v. heima hjá henni í Sviss!

Árni Davíðsson, 12.10.2009 kl. 10:11

2 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Ha, var einhver brekka?!?    Mér fannst þetta vera nánast allt á jafnsléttu.  Ég fór fyrst Hvalfjarðaveginn svo ég væri með sólina í bakið (þá sjá ökumenn mig betur sem koma aftan að mér), og svo "vinstra" megin inn í hringinn.  Brekkan þar er meira aflíðandi og þannig lagað auðveldari en hjóla hringinn rangsælis.

Hjóla-Hrönn, 12.10.2009 kl. 10:46

3 Smámynd: steinimagg

dugleg :-)

steinimagg, 12.10.2009 kl. 22:15

4 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir frásögn, kort og flottar myndir. Þú veitir svo sannarlega innblástur !

Morten Lange, 19.10.2009 kl. 12:27

5 identicon

Sæl,

ég get ekki setið á mér að segja þér frá Orrustuhól (ég er frá Eilífsdal). 

Þetta er bólstabergshóll sem kemur fyrir í Kjalnesingasögu, en aðalpersóna hennar, Búi, berst þar við óvini sína, drepur marga og særir fleiri áður en Eilífur bóndi gengur í milli. Það þarf að google-a "Eilífsdalur" til að þessar upplýsingar komi upp (ég fann einmitt bloggið þitt þannig, ég gúgglaði bæjarnafnið vegna upplýsinga sem ég var að leita að).    

heidaa (IP-tala skráð) 4.4.2010 kl. 14:41

6 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Takk fyrir þetta Heiða, ég mun hafa öllu vígalegri mynd í huga næst þegar ég hjóla fram hjá Orustuhólnum.

Hjóla-Hrönn, 5.4.2010 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband