26.2.2010 | 12:03
Vígin falla eitt af öðru
Ef einhver hefði sagt mér í fyrra að ég ætti eftir að hjóla á Suðurlandsbrautinni, þ.e. akbrautinni hefði ég talið viðkomandi nett klikkaðann. En þetta gerði ég í gærkveldi af illri nauðsyn.
Ég hjólaði til vinnu í gær og valdi að fara stíginn við Miklubraut báðar leiðir, af því hann á að vera í forgangi hvað ruðning stíga varðar. Ég komst nokkuð auðveldlega til vinnu, en seinnipartinn náðu skaflarnir á köflum upp á mið læri, og ég þurfti að teyma hjólið ca 1/4 af leiðinni. [Innsk síðar] Ljósmyndari Fréttablaðsins var staddur á réttum stað á réttum tíma, þessi mynd af mér á Miklubrautinni birtist í Fréttablaðinu 27.02.2010
Ég hjólaði í klúbbhús Fjallahjólaklúbbsins í gærkveldi, á aðalfund LHM og ákvað að prófa Kleppsveginn, af því það er strætóleið og hún ætti að vera sæmilega mokuð. Það var hún ekki, væntanlega nógu góð fyrir strætó, en aðeins of mikill þæfingur fyrir mig. Svo ég ákvað að prófa Suðurlandsbrautina til baka, hvort það væri nokkuð mikil umferð í kring um miðnættið. Svo var ekki, og ég hafði alla akreinina fyrir mig. Vel skafin og gekk glimrandi vel að hjóla heim í Smáíbúðahverfið.
Í morgun var búið að moka stígana, en bara ekki nógu vel, snjórinn var oft 10-15 cm djúpur, sem væri í sjálfu sér ekki vandamál, en er það þegar stígurinn er fullur af djúpum fótsporum, þá er þetta eins og að reyna að hjóla á þvottabretti. Svo ég fór aftur út á Suðurlandsbraut. Núna var svolítil umferð, en samt ekki meiri en svo að ég gat ekki fundið að ég tefði fyrir ökumönnum. Ætli ég sé ekki búin að finna mér nýja leið til og frá vinnu. Nema maður verði svo mikill hjólanörd að hér eftir dugi ekkert minna en Miklabrautin! Það yrði síðasta vígið.
Fólk hvatt til að ganga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 117547
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Suðurlandsbrautin er draumur í dós, aldrei nein umferð að ráði þar.
Edda Sigurjonsdóttir (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 12:22
Í þessu samhengi má nefna að saltið gerir hjólreiðar mjög erfiðar á mörgum götum þegar snjóar. Það er nánast ómögulegt að hjóla á götu sem er saltborin en snjóar svo ofan á, því snjórinn þjappast ekki heldur verður að ljósbrúnni "kartöflustöppu". Svo berst saltið inn í hliðargötur (sem ekki eru ruddar fyrr en eftir dúk og disk) og skemmir færð í þeim, sérstaklega í beygjunum þar sem saltið hreinsast úr framdekkjum bílanna.
kv.
jens "þolir ekki salt á götunum" gíslason
Jens (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 14:17
Ég þoli heldur ekki salt á götunum og kartöflustappan sem þú nefnir er hér á bæ kölluð saltslabb. Það er líka erfiðara að keyra í þessu saltslabbi heldur en í hreinum snjó, því gripið er mun meira í snjónum.
Hólmfríður Jónsdóttir (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 16:05
Farðu verlega í umferðinni.
steinimagg, 27.2.2010 kl. 20:50
Ég þóttist þekkja þig á myndinni í Fréttablaðinu. Flott.
Árni Davíðsson, 10.3.2010 kl. 10:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.