31.5.2012 | 21:41
Hvalfjörður
Með tilkomu Hvalfjarðaganganna hefur Hvalfjörðurinn sjálfur breyst í paradís útivistarunnandans.
Vissulega á fólk leið þarna um á vélknúnum ökutækjum, þarna er að rísa blómleg sumarbústaðabyggð, og einhverjir sveitabæir eru í firðinum. En það er ekki hægt að tala um umferðarþunga, bíll og bíll á stangli og allir víkja vel. Ég styðst við bæði vedur.is og yr.no til að velja mér hjóladaga. Og svo sannarlega var þessi dagur vel valinn.
Áði í fallegri laut, sólaði mig, hlustaði á fuglasöng og árniðinn.
Hreyfði ekki hár á höfði sem er óvananlegt í Hvalfirðinum.
Var nú ábyggilega búin að segja þá sögu áður, en hún hlýtur að vera mörgum mánuðum eða árum aftar. Ætlaði að labba frá botni Hvalfjarðar yfir til Þingvalla og tjalda á leiðinni. Rokið var slíkt að það var ekki stætt úti, þó hafði verið ágætis veður í Reykjavík. Svo ég svona keyri áfram á meðan ég var að hugsa hvað ég ætti að gera, hvort ég ætti að prófa Borgarfjörð eða aðeins norðar. Líka leiðindaveður í Borgarfirði og tjaldstæðið ekki til að hrópa húrra fyrir svo ég ók áfram. Stoppaði í Hreðavatnsskála og fékk mér hamborgara (ég veit, ég veit, áður en ég var búin að hreyfa nokkuð annað en bensínlöppina). Ég rek augun í auglýsingu uppi á vegg. Hljómsveitin Bogomil Font leikur fyrir dansi. Met det samme var útivistinni slaufað fyrir djamm. Ekki í fyrsta sinn og ábyggilega ekki heldur í síðasta sinn.
Kvöldið var svo hið skemmtilegasta, ég dansaði hálfa nóttina við fótbrotinn rútubílstjóra sem var, þrátt fyrir gifs og hækjur merkilega fimur á dansgólfinu.
En víkjum aftur að Hvalfirði... Ég hjólaði frá botni Hvalfjarðar, fram hjá Meðalfellsvatni og Kjósarskarðsveg niður að Þingvallavegi. Þar fékk ég blússandi meðvind að Gljúfrasteini, en þar snerist vindurinn snögglega, svo ég fékk að puða pínulítið, eykur endorfinið svo maður dettur alsæll niður í lok ánægjulegs hjóladags. Og nei, þið fáið ekki mynd af hjólinu í þetta sinn!
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frábært blogg að vanda hjá þér Hrönn. Og myndirnar maður
Heiðar Birnir (IP-tala skráð) 31.5.2012 kl. 22:43
Stórkostlegar myndir hjá þér og alltaf gaman að lesa bloggið :)
Hólmfríður Gestsdóttir (IP-tala skráð) 31.5.2012 kl. 23:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.