14.7.2009 | 13:06
Hjólað um sveitir Íslands
.
Bílstjórar fá hrós frá mér fyrir alveg einstaka tillitssemi. Allir sem einn viku yfir á hina akreinina, allir hægðu ferðina sem mættu mér á malarvegum og einstaka stoppaði meira að segja til að ég fengi ekki rykmökkinn yfir mig eða steinakast. Ég er búin að hjóla tæplega 400 kílómetra á síðustu 6 dögum og bara aldrei þessu vant hef ekki yfir neinu að kvarta. Bara alveg í skýjunum með vel heppnaða hjólaferð.
.
.
Það var hjólað á malbiki og malarvegum um sveitir Vesturlands og Reykjaness, alein í heiminum á köflum, stundum töluverð umferð og einu sinni neyddist ég til að stytta túr og hjóla á Reykjanesbrautinni. En ætlunin var að halda mig fjarri Þjóðvegi 1 og öðrum álíka umferðargötum.
.
.
Ég varð að skipuleggja ferðina þannig að ég keyrði á upphafspunkt, svo var hjólað í 20-60 kílómetra hring, aftur að bílnum. Svo var keyrt á næsta stað og hjólað meira eða inn á tjaldstæði þegar leið að miðnætti. Það er mjög þægilegt að hjóla á kvöldin á Íslandi, næg birta, það lygnir oft á kvöldin og það eru færri bílar á ferli.
.
.
.
.
Suma 20 km hringina var ég 4-6 tíma, bara við að skoða krúttleg sveitabýli eða taka smá kríu, vaknaði einu sinni sólbrunnin á bakinu eftir 2ja tíma dúr, en með skemmtilegt mynstur á lærunum eftir grasið.
.
.
.
Ég býst við að þurfa að hætta að mála mig hér á blogginu sem hálfgerðan aumingja, ég verð samt að viðurkenna að ég sakna svolítið hetju-stílsins sem ég gat gortað af síðasta vetur. Fertug kelling með fjörtíu aukakíló að böðlast áfram í brjáluðum blindbyl um hávetur. Það er svolítið töff á prenti. Núna eru aukakílóin bara 15 og ekkert þrekvirki að hjóla um með svoleiðis lítilræði. Annar hver kjaftur á Íslandi í sama ásigkomulagi.
.
.
Ég er fremur lystarlítil þegar ég hjóla. Þegar ég fór á Nesjavelli var ég með nokkur kíló af nesti, pasta-salat, flatbrauð, samlokur, ávexti. Ég kom aftur heim með 90% af nestinu. Þegar ég kem á áfangastað er ég svo ekki í neinu stuði til að fara að brasa með prímus eða grilldót. Svo ég ákvað að prófa að taka með mjög minimalískt nesti og sjá hvernig það kæmi út upp á svengd og orku. Nestið yfir daginn var 5 bréf af Núpó næringardrykk og svo skammtaði ég mér 3-5 kex í hvert mál. Þetta tekur lítið pláss í farangri og dugði fínt þó að vissulega hafi kosturinn verið pínu tilbreytingarlítill þegar leið á ferðina. En ég veit alla vega núna að þetta nesti dugar ef ég fer í lengri samfellda hjólaferð, það er aldrei að vita nema ég geymi bílinn heima næst.
.
.
Og þá er bara spurningin, voru þetta ísbirnir sem ég sá á rölti hinu megin við Hvítá?
.
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 117730
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Snilldarframtak!!! Þetta ætla ég að gera næsta sumar
Kolbrún Heiða Valbergsdóttir, 14.7.2009 kl. 13:33
Flottar myndir hjá þér Hrönn. Gaman að finna svona hjólasjúka kjellíngu. En ég er slík. 52 ára í október og hjóla ca. 200 km á viku. Stundum meira. Hjólaði einmitt á Nesja velli (fram og tilbaka) um helgina síðustu og Þingvelli þarsíðustu. Annars er ég meststígunum hér á höfðuborgarsvæðinu. Það jafnast fátt á við að hjóla.
Margret Agustsdottir (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 14:15
Ég segi nú bara til hamingju með þetta, frábært.
steinimagg, 15.7.2009 kl. 20:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.