15.11.2009 | 15:24
Og þar fór Komda hjólið :(
Síðasta sumar fór ég í skemmtilega ferð til Viðeyjar og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Ég vorkenndi hvílíkt strákunum sem þurftu að hífa Komda hjólið mitt um borð í Viðeyjarferju, því það er níðþungt. Ég var ákveðin í að mæta næsta sumar á léttara hjóli og það verður pottþétt, því hjólinu var stolið síðasta föstudag, um hábjartan dag.
Raunar hefði ég aldrei átt að kaupa þetta hjól, stellið var aðeins of lítið fyrir mig, en það var hræódýrt, 24 þúsund kall eftir hrun, með þægilegum fítus, hægt að brjóta það saman og setja í skottið á bíl. Sem ég nýtti mér mikið á ferðalagi síðasta sumar, nú og svo þegar ég hef verið of drukkin til að hjóla heim af djamminu, þá er fínt að geta blikkað einhvern til að skutla sér og samanbrotnu hjólinu heim. Nú bölva ég hástöfum að hafa verið svona tímanleg að setja nagladekkin undir, 25 þúsund kall þar! Nema ég nái að kaupa notuð nagladekk á netinu, kannski verða það mín eigin dekk, heh.
Oh, í þessum skrifuðu orðum var ég að fatta að festingin fyrir töskuna að framan var á hjólinu, nú er taskan eiginlega ónothæf, nema ég geti keypt festingarnar sér *sich*, ótrúlegt hvað svona stuldur getur reynst manni leiðinlegur og fyrirhafnarsamur
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Var hjólið læst?
steinimagg, 15.11.2009 kl. 18:20
Já, hjólið sjálft var læst, en ekki við neitt nógu massíft. Nú hef ég þessa líka fínu afsökun til að kaupa mér gott alvöru hjól. Bæði ódýru hjólin mín farin á innan við mánuði. Ég mun geyma nýja hjólið inni býst ég við, alla vega fyrstu árin.
Hjóla-Hrönn, 15.11.2009 kl. 18:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.