Bloggfærslur mánaðarins, desember 2013
5.12.2013 | 16:57
Vetrarhjólreiðar
Í dag var 12 stiga frost. Er hægt að hjóla við þær aðstæður? Já, já, það er vel hægt. Ég man raunar ekki hvað er mesta frost sem ég hef hjólað í, en vindstyrkur skiptir líka máli, það getur verið mun kaldara í hlýrra veðri ef vindur er meiri.
Flestir gera þau mistök að klæða sig of mikið. Þá svitna menn og kólna fljótt þegar stöðva þarf á ljósum eða við aðrar aðstæður. Á veturna er ekki endilega verið að hjóla mikið sér til skemmtunar, maður lætur nægja að hjóla til og frá vinnu og svo skottúra sem taka ekki meira en 20-30 mínútur. Það er í lagi að vera kalt þegar lagt er af stað, manni hlýnar fljótt. Hér var ég á ferðalagi í janúar síðastliðnum og tók mynd af fötunum sem ég ætlaði að vera í. Auk þeirra flíka sem eru á myndinni bætti ég við legghlífum, þar eð snjódýpt var það mikil að snjórinn hefði getað skóflast ofan í skóna. Svo er ég í rúmum vinnuskóm, það skiptir miklu máli að skór og fatnaður hindri ekki blóðflæði.
Í dag var ég í svipuðuðum fatnaði. Rúmum ullarsokkum (ekki bómullarsokkar undir), síðu föðurlandi, ullarbol sem náði upp í háls, flíspeysu utanyfir, hjólabuxum, buff og hanskar. Gult endurskinsvesti. 12 km hjólatúr og mér varð ekki kalt. Það beit jú aðeins í kinnarnar og eftir hálftíma hjólatúr fann ég fyrir köldum tám, en þá fór ég bara af baki og gekk í 2-3 mínútur eða þar til mér varð aftur heitt á tánum. Nærföt þurfa að vera úr ull, silki eða gerviefni sem þornar fljótt.
Ég er kannski ekki alveg jafn mikið að ota mínum tota í fjölmiðlum og fólk heldur, það eru blaðamennirnir sem hafa samband við mig eftir ábendingu frá einhverjum, ég held alltaf að það sé verið að fjalla um eitthvað efni og ég muni sjást í mýflugumynd, en enda alltaf sem aðalatriðið. Hér er viðtal sem birtist í mbl.is sjónvarp um vetrarhjólreiðar. Í lokin spurði myndatökumaðurinn "Hvað hjólar þú eiginlega mikið yfir árið?" Og eftir að hafa svarað því virka ég náttúrulega sem svaðalegur harðjaxl, en ekki ofurvenjulega húsmóðirin i Austurbænum, sem ég náttúrulega er fyrst og fremst.
http://www.mbl.is/frettir/sjonvarp/65718/
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar