1.4.2010 | 20:30
Fyrir nákvæmlega ári síðan...
... skrifaði ég bloggfærslu þar sem ég sagðist vera hætt að hjóla vegna heilsubrests. Auglýsti hjólin mín og hjólafatnað til sölu. Þetta var að sjálfsögðu aprílgabb og nokkrir hlupu fyrsta apríl og sendu inn fyrirspurnir um hjólin. Tveir tóku sérstaklega fram að þeir vissu vel að það væri 1 apríl, en vildu samt gera tilboð ef ég hefði ekki fattað sjálf að það væri 1 apríl og væri í alvörunni að selja hjólin.
Einn vildi fá myndir af mér í fötunum senda í email. Ég er enn að kitla hégómagirndina, að hann hafi virkilega langað í myndir af mér í þröngum spandex klæðnaði en væri ekki að reyna að láta mig hlaupa fyrsta apríl til baka.
Eftir því sem dagar, vikur og mánuðir liðu hélt fólk áfram að hlaupa apríl. Senda mér tilboð í hjólin. Ég fékk síðast tilboð í mars síðastliðnum, tæpu ári eftir að ég setti gabbið fram. Þá ákvað ég að fela færsluna, þó að það sé gaman að gabba fólk í einn dag á ári, þá vill maður ekki plata fólk allan ársins hring. Þó að ég hafi verið búin að uppfæra færsluna með 1 apríl klausu, þá dugði það ekki til, fólk las bara "hjól til sölu" og sendi svo póst hið snarasta til að missa nú ekki af tækifærinu.
Mér hefndist raunar fyrir gabbið, hjólinu mínu var stolið úr bakgarðinum um hábjartan dag. Við áttum þó margar ánægjustundir allt síðasta ár, þessi mynd er tekin nálægt Húsafelli einn sólríkan dag síðastliðið sumar. Einstaklega skemmtileg leið til að njóta náttúrunnar í návígi.
Ég hefði kannski átt að halda færslunni inni og sjá hvort ég geti ekki sett Íslandsmet í lengd aprílgabbs.
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 117546
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvernig stendur á því að fólk er ekki að skilja hvað það er að "hlaupa" fyrsta apríl! það að auglýsa eitthvað á bloggi og fólk svarar er ekki að hlaupa apríl, fólk þarf að , hlaupa til handa og fóta og láta þannig plata sig, það er mergurinn málsins.
Guðmundur Júlíusson, 1.4.2010 kl. 21:49
Amma mín sálug sagði að fólk þyrfti lágmark að fara yfir þröskuld til að gabbið teldist heppnað. Á svona tækniöld held ég að það verði að teljast gott ef fólk ómakar sig til að skrifa email sem það hefði ekki þurft að skrifa... Það er að "hlaupa upp til handa og fóta" í dag. Ég var ekki nægilega forhert til að láta fólk koma og skoða, það hefði væntanlega þá flokkast undir apríl-gabb hjá þér
Hjóla-Hrönn, 1.4.2010 kl. 22:21
Já, það hefði gert það :)
Guðmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 1.4.2010 kl. 22:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.