28.9.2010 | 14:26
Algjörlega off
Fyrir nokkrum árum sá ég umræðu á vef Barnalands. Titillinn var "Algjörlega off" og sú sem hóf umræðuna var að spyrjast fyrir um hvað konum þætti fráhrindandi í fari karlmanna. Í mínu tilfelli eru það svitablautir sokkar og jakkaföt. Ég fæ alltaf velgju þegar ég sé "rómantísk" augnablik í bíómyndum þar sem einhver fer úr skónum undir borði og strýkur "æsandi" með tánum upp eftir fótlegg aðilans sem á að heilla. Guð hjálpi þeim manni sem reyndi slíkt við mig, hann myndi sko uppskera spark í punginn, ef ég væri ekki búin að æla yfir kjöltuna á honum áður.
Hitt er svo jakkaföt. Fæstir karlmenn bera jakkaföt vel, þeir verða stífir, þeim líður illa, bindið virðist vera að hengja þá, og kynþokkinn sem getur leynst undir jakkafötum fer venjulega fram hjá mér. Jakkaföt eru í sama kynþokkaflokki og gúmmístígvél og vöðlur í mínum augum. Þá eru menn farnir að minna óþyrmilega á leikskólakrakka í þeirri múnderingu. Kannski skánar það þegar þeir eru komnir hálfir ofan í á í fallegu umhverfi *hugs*
Karlmenn eru venjulega mest heillandi þegar þeir eru í klæðnaði eða aðstæðum sem þeim líður vel í.
Ekki óraði mig fyrir að þessi umræða væri svona djöfullega fyndin, líftími hennar er núna kominn á sjötta árið og enn get ég hlegið mig máttlausa yfir sjarmörunum sem íslenskt kvenfólk hefur hitt í gegn um tíðina... Njótið ef þið hafið ekki lesið þessa umræðu áður:
http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=2472467&advtype=52&page=1&advertiseType=0
Og svo er hér önnur umræða á líkum nótum, hún er um okkar mistök svo fyllsta jafnréttis sé gætt, skiljanlega svolítið blóðugri en hin:
http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=15877871&advtype=52&showAdvid=15889193#m15889193
Hjólamenn í uppáhaldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 117547
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svakalega skil ég þig vel !! Jakkaföt eru einhvar ömurlegasti klæðnaður sem fyrir finnst sérstaklega þegar búið er að herða þessa fáránlegu efnis druslu sem kölluð er bindi , þétt upp að hálsinum.
P.S. Aldrei að treysta mönnum í jakkafötum , ekki undir neinum kringumstæðum.
Kv Röggi
Röggi (IP-tala skráð) 29.9.2010 kl. 17:06
he he
steinimagg, 30.9.2010 kl. 21:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.