28.7.2009 | 12:37
Hjólaði þvert yfir Ísland
.
Þegar menn segjast hafa farið hringinn í kring um Ísland, eru Vestfirðirnir iðulega skildir útundan. Teljast ekki með. Kannski skiljanlegt í gamla daga þegar vegir á kjálkanum voru verulega vondir og eiginlega bara færir traktorum. Svo ég ákvað að heiðra Vestfirðina sérstaklega og hjóla þvert yfir Ísland, Steinadalsheiðina. Frá Kollafirði við Húnaflóa að Gilsfirði við Breiðafjörð. Það þarf ekkert alltaf að fara lengstu leiðina við að þvera Ísland, er það nokkuð?
.
.
Steinadalsheiði er 17 kílómetrar, ég bjóst við að verða 3 tíma að hjóla fram og til baka, en gleymdi að taka hækkunina með í reikninginn. 200 metrar virkar eitthvað svo lítið þegar maður hugsar þversum. En þegar maður þarf að hjóla upp í 200 metra hæð, þá er það smá puð. Ég kom keyrandi að Kollafirðinum, lagði bílnum þar og hjólaði svo á fínum malarvegi framan af, svo á aðeins grófari vegarslóða, þurfti að fara yfir nokkur vöð og svo þurfti ég að teyma hjólið upp bröttustu brekkurnar.
.
.
Pabba leist nú ekki alveg á að ég ætlaði að hjóla þetta, "þetta er eiginlega jeppatroðningur" sagði hann. Ja, ég verð nú að segja að það hafi verið þægilegra að hjóla Steinadalsheiðina en sumar göturnar á Ísafirði, ég get svo svarið það, ég fann nýrun og eggjastokkana skipta um staðsetningu þegar ég hjólaði Hlíðarveginn, sem á þó að heita malbikaður. Gaman samt að sjá hvað það er mikil hjólamenning á Ísafirði.
.
.
Letin bankaði upp á Gilsfjarðarmegin, ég ákvað að húkka mér far til baka yfir heiðina, leist ekkert á að teyma hjólið upp allar brekkurnar sem ég var nýbúin að húrra niður og þægilegi meðvindurinn sem ég hafði haft í vesturátt hafði breytt sér í þokkalegan storm og það var byrjað að rigna. Hóst, og svo átti þetta eiginlega að vera auðveldur sunnudagshjólatúr til að hrista úr sér timburmennina. Hefði þá bara keyrt heiðina til baka og sótt hjólið, ég treysti mér alveg til að keyra hana á smábílnum sem ég var á, þó að heiðin sé rækilega merkt 4x4 Torleiði, vegurinn var alveg ágætur.
.
.
Það var of kalt til að bíða hreyfingarlaus eftir fari, svo ég ákvað að rölta rólega af stað með hjólið upp á heiði. Ég mætti bara einum bíl þá tvo tíma sem ég var að fara hana í vesturátt, svo ég var ekkert viss um að neinn myndi fara hana í austurátt, ég var ekki viss um að ég gæti teymt hjólið upp alla leið vegna þess að ég var ekki orðin góð í bakinu, plan B var að leggja frá sér hjólið og labba alla leið yfir að bílnum. Það myndi taka mig 3-4 klukkutíma sem hefði svo sem verið allt í lagi, á meðan það er ennþá bjart á kvöldin.
.
.
Þegar ég var búin að labba og teyma hjólið í rúman klukkutíma kom fyrsti bíllinn. Á móti mér. Fólkið stoppaði og hrósaði mér í hástert fyrir dugnaðinn, ég var meira að segja mynduð í bak og fyrir. Ég fylltist krafti við þetta og eftir þó nokkuð margar mínútur í viðbót af þrammi upp á við var ég komin upp á háheiðina og eftir það lá leiðin aftur niður á við. Reiknaði með 3-4 tímum í austurátt vegna mótvinds, en var bara 2 og hálfan.
.
Á meðan ég húrraði niður brekkurnar austan megin var ég alveg steinhissa, mundi ekki eftir að hafa labbað svo lengi upp í móti, maður gleymir sér einhvern veginn á einkennilegan hátt einn í náttúrunni, tíminn verður afstæður og hættir að skipta máli.
.
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Glæsilegt hjá þér, kona!
Vilborg D. (IP-tala skráð) 28.7.2009 kl. 16:45
Flott
steinimagg, 31.7.2009 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.