29.9.2009 | 19:52
Hjólaföt - netverslanir
Þar eð ég telst nú vera "venjuleg" kona í þyngdarlegum skilningi áræddi ég að hætta mér inn í hérlendar íþróttabúðir, mátaði slatta af hjólabuxum og annan íþróttafatnað. Passaði vissulega í eitthvað af þessu, en þá var hönnunin asnaleg, t.d. buxurnar stuttar að aftan, og hver vill hjóla með rassskoruna uppúr? Ekki ég. Svo ég ákvað að prófa að panta upp úr erlendri vefverslun sem sérhæfir sig í hjólavörum. Pantaði einar kvenbuxur í xl og karlmannsbol í xl. Þetta passaði svona líka ljómandi fínt, bæði meira að segja vel rúmt.
Svo ég áræddi að panta meira og nú allt úr kvengeiranum. En nei, xl er sko ekki sama og xl. Þó að það sé innan sama framleiðanda. Pantaði buxur og bol. Í xl. Buxurnar voru níðþröngar en náðu upp að herðablöðum að aftan. Að framan náðu þær varla upp fyrir hárlínu. Fór að lesa nánar lýsinguna á þessum buxum og þær reyndust vera hannaðar sérstaklega fyrir racer-konur. Jahá, er ekki gert ráð fyrir því að konur þurfi að stíga af baki einhvern tíma??? Bolinn sem ég hafði keypt við passaði ágætlega á þverveginn, nema hann var óvenju stuttur að framan. Aftur eitthvað racer-dæmi og merkilegt nokk, virtist vera hannað á holduga konu 160 á hæð. Síddin að aftan er hins vegar það mikil að ég þarf ekki að taka með dömubindi í hjólatúrana... "so there is no annoying gap" stóð í lýsingunni á vefsíðunni. Nei, það angrar mig ekki baun þótt brjóstin gægist niður undan bolnum og brúskurinn upp úr buxunum. Gaaarrrggg. Og nei, þið fáið ekki mynd!
Ætli ég haldi mig ekki við karlmannalínuna í framtíðinni. Hef ekki séð svona asnalega hönnun á karlmannsflíkunum. Hef alla vega ekki séð neinn með bibbann uppúr hjólabuxunum.
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 117642
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú kemst svo dásamlega að orði Hrönn :-) Gaman að lesa bloggið þitt.
kv. Magnea
Magnea J. Guðmundar (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 22:32
Já sum hjólaföt eru alveg furðuleg, maður kaupir kannski buxur sem passa um mittið en þá eru þær svo háar að maður lítur út eins og Steinríkur :-)
Ég hef verslað nokkrar flíkur frá Pearl Izumi og mæli með þeim, að vísu í dýrari kantinum en mjög vönduð vara. Barrier jakkinn frá þeim er frábær fyrir okkur á klakanum,
hann er vatsheldur að framan og andar vel að aftan, bara snilli :-)
steinimagg, 3.10.2009 kl. 19:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.