29.11.2009 | 23:44
Sól, sjór og bjór
Næstum því. Sól, sjór og hjól. Reykjanes í nóvember. Sólin breyttist raunar í slyddu á köflum. Ákvað að skreppa í sund í Sandgerði. Kippti hjólinu með ef ég skyldi vera í hjólastuði. Sem ég er alltaf.
Byrjaði í Keflavík, hjólaði gegnum Garð niður að Garðskagavita, þaðan yfir til Sandgerðis, en var of sein í sundið, það lokaði kl 15. Þá var bara að hjóla áfram inn í Keflavík og dýfa sér ofan í Vatnaveröldina. Oh, notalegt.
Þetta er held ég það allra flatasta sem ég hef hjólað. Ekki ein einasta brekka, varla að vegurinn hallaði nokkurn tíma. Malbikað alla leið, en malbikið slæmt á stöku stað, t.d. rifur í bikinu og frá Garði að Sandgerði var nýlögð olíumöl sem var verri yfirferðar en malarvegur.
Það var töluverð umferð bíla, ég er aðeins að sjóast í umferðinni, fyrst þótti mér óþægilegt að hjóla í götunni heima, fannst alltaf eins og einhver væri í þann veginn að fara að klessa á mig. Svo vandist ég að hjóla á götum með hámarkshraða 50, og núna var ég salíróleg þó að stórir trukkar með tengivagna brunuðu fram úr mér á ofsaferð. Bara hressandi. Ætli maður endi ekki á þjóðvegi eitt fyrir rest. Kannski hjóla ég hringinn í kring um Ísland þegar ég verð sextug, en þá get ég hætt að vinna og farið á eftirlaun.
Þetta voru ca 25 km og mér fannst ég varla lögð af stað þegar ég var komin aftur til Keflavíkur, full stuttur hjólatúr.
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.