30.12.2009 | 16:02
Ef það er eitthvað nýtilegt í mér, þá má hirða það
Finnst rauninni skrítið að það sé ekki búið að setja nein lög hérlendis um þessi mál. Ég er með svona lítið blátt kort í veskinu, þar sem kemur fram að það megi nota líffærin úr mér eftir andlát. En það hefur ekkert lagalegt gildi, ættingjar mínir ráða eftir sem áður hvort líffærin verða nýtt eða hvort þau verða grafin með mér eða brennd.
Og hvernig á framkvæmdin að vera? Skrá þetta í ökuskírteinið? Hérlendis gilda ökuskírteini til 70 ára aldurs. Sumir eru ekki með ökuskírteini. Á þá að gefa út ný skírteini á alla núlifandi Íslendinga, 17 ára og eldri hvort sem þeir eru með ökuréttindi eður ei? Þá réttindalaus ökuskírteini á suma eins kjánalega og það nú hljómar. Eigum við að skrá þetta á skattaskýrsluna, og svo geta valdir aðilar innan heilbrigðisgeirans flett upp kennitölunni í gagnagrunni og séð óskir hins látna?
Mér lýst alla vega vel á finnsku leiðina, að sjálfkrafa séu allir lögráða líffæragjafar, en fólk hafi þó möguleikann á að hafna því að gerast líffæragjafi.
Líffæragjöf verður sjálfkrafa í Finnlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Október 2017
- Ágúst 2017
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Desember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Maí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála.
Þetta eru mjög sniðug lög hjá Finnunum. Það væri frábært að láta tína allt nýtilegt úr sér til að öðlast smá framhaldslíf og bjarga öðrum. Svo finnst mér að öskunni mætti dreifa hvar sem er. En það er ekki enn leyfilegt hér á landi þó nóg sé til af óbyggðu landi.
Ég geri hinsvegar ráð fyrir að við íslendingar séum of vitlausir og eigingjarnir til að taka skinsamlegar ákvarðanir um þessi mál.
Magnús Bergsson, 5.1.2010 kl. 01:29
Líst vel á Finnanna.
Hef lengji ætlad ad sendä inn tess efnis ad ég vil gjarnan gefa mín líffæri en ekki látid vera af tví...
Kvedja til tín frá Hyggestuen
Gudrún Hauksdótttir, 5.1.2010 kl. 17:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.